Faraldur af sortuæxlum hjá ungum konum
Mon, Mar 30 2009 04:04
| Húðkrabbamein, Sortuæxli
| Fastur tengill
Áberandi er hve sortuæxli eru algeng hjá konum yngri en 35 ára skv. tölum frá Krabbameinsfélagi Íslands. Á línurtitunum hér að neðan er tíðnin borin saman á milli Norðurlandanna. Þar kemur fram að fram undir 1990 er tíðni sortuæxla hjá ungum konum lægst hér á landi, en fer ört vaxandi eftir það. Á síðustu árum eru íslensku konurnar með nánast þrefalda tíðni miðað við hin Norðurlöndin. Þekkt er að útfjólubláir geislar er einn helsti áhættuþáttur í myndun sortuþæxla og þegar tekið er tillit til legu landsins koma þessar niðurstöður nokkuð á óvart. Hækkun hefur einnig sést hjá ungum karlmönnum, en hún er ekki eins áberandi.
Fyrir þá sem vilja kynna sér einkenni sortuæxla má gera það hér.
Stöð 2 birti frétt um málið og má nálgast fréttina hér að neðan:


Fyrir þá sem vilja kynna sér einkenni sortuæxla má gera það hér.
Stöð 2 birti frétt um málið og má nálgast fréttina hér að neðan:


Leiðbeiningar til þeirra sem hafa aukna áhættu á myndun sortuæxla
Sat, Feb 28 2009 01:30
| Húðkrabbamein, Sortuæxli
| Fastur tengill
Þekktir eru ýmsir áhættuþættir að því er varða myndun sortuæxla. Þar má nefna sólbruna, sérstaklega í æsku, óhóflega sólun, óreglulega fæðingarbletti, marga fæðingarbletti, ljósbekkjanotkun og ljósan húðlit. Ef þú fellur í einhvern þessara flokka þarftur að kynna þér eftirfarandi.
1. Kynna sér staðreyndir um sortuæxli og útlit þeirra þannig að þeir geti greint hættumerkin. Þess vegna er nauðsynlegt að kynna sér eftirfarandi efni.
1. Kynna sér staðreyndir um sortuæxli og útlit þeirra þannig að þeir geti greint hættumerkin. Þess vegna er nauðsynlegt að kynna sér eftirfarandi efni.
2. Skoða húðina mánaðarlega m.t.t. breytinga. Hvernig slík skoðun fer fram er lýst hér að ofan
3. Nota sólvörn 25 eða meira í sól
4. Nota ekki ljósabekki
5. Regluleg skoðun hjá húðlækni ef þú ert með mikið af fæðingarblettum og/eða óreglulega fæðingarbletti.
6. Ef blettur er að breyta sér. Hafa samband við Húðlæknastöðina í síma 5204444, eða með tölvupósti. Gefa upp að þú hafir áhyggjur af blett sem er að breyta sér.
Mikilvægt er að átta sig á að blettir sem eru í lagi við skoðun geta breytt sér á 6 mánuðum eða jafnvel styttri tíma. Þess vegna er mánaðarleg sjálfskoðun mjög mikilvæg.
Kær kveðja
Húðlæknastöðin
3. Nota sólvörn 25 eða meira í sól
4. Nota ekki ljósabekki
5. Regluleg skoðun hjá húðlækni ef þú ert með mikið af fæðingarblettum og/eða óreglulega fæðingarbletti.
6. Ef blettur er að breyta sér. Hafa samband við Húðlæknastöðina í síma 5204444, eða með tölvupósti. Gefa upp að þú hafir áhyggjur af blett sem er að breyta sér.
Mikilvægt er að átta sig á að blettir sem eru í lagi við skoðun geta breytt sér á 6 mánuðum eða jafnvel styttri tíma. Þess vegna er mánaðarleg sjálfskoðun mjög mikilvæg.
Kær kveðja
Húðlæknastöðin
Blessuð sólin elskar allt
Mon, Feb 16 2009 02:35
| Sól, Húðkrabbamein, Sortuæxli
| Fastur tengill

Bárður Sigurgeirsson húðsjúkdómalæknir
Greinin birtist í Læknablaðinu 7. tbl 90. árg. 2004
Nú er tími sumarleyfa, sólarlandaferða, sólbaða, útivistar og vonandi eigum við eftir að njóta margra góðviðrisdaga á þessu sumri. Í tilefni af þessu er ekki úr vegi að huga að því að blessuð sólin hefur einnig aðrar hliðar, skuggahliðar sem mun verða fjallað um hér á eftir.
Sólargeislar geta valdið sólbruna, öldrun húðar og húðkrabbameini (1). Faraldsfræðilegar Bárður Sigurgeirssonrannsóknir hafa sýnt að flöguþekjukrabbamein tengjast heildargeislamagni, en sortuæxli og grunnfrumukrabbamein hafa verið tengd við óreglulega sólun (2, 3). Sortuæxli hafa einnig verið tengd sólbrunum og sólböðum í æsku (2). Þrátt fyrir þessar staðreyndir eru margir tilbúnir að greiða dýru verði fyrir brúnan húðlit (3, 4). Talið er að sólargeislarnir geti valdið húðkrabbameini með því að valda stökkbreytingum í mikilvægum stjórngenum eins og p53 og með bælingu ónæmiskerfisins (5). Jafnvel minni háttar roði í húðinni eftir sólbað er merki um DNA skemmdir bæði í litarfrumum og hornfrumum (6). Húð flestra einstaklinga býr yfir öflugu viðgerðarkerfi sem oftast lagfærir slíkar skemmdir. Sjúklingar sem hafa meðfædda viðgerðargalla fá hins vegar fjölda húðkrabbameina, strax á fyrstu árum ævinnar. Margt bendir til þess að sá lífstíll sem við tömdum okkur á tuttugustu öldinni valdi svo miklu álagi á viðgerðarkerfi húðarinnar að í mörgum tilvikum nái húðin ekki að laga skemmdirnar og að afleiðingarnar séu ört vaxandi nýgengi húðkrabbameina. Þó talið sé að flest húðkrabbamein megi rekja til geisla sólarinnar hafa nýlegar rannsóknir einnig sýnt fram á tengsl húðkrabbameina við notkun ljósabekkja (6, 7).

Undanfarna ártugi hefur nýgengi húðkrabbameina, sérstaklega sortuæxla, aukist hratt hérlendis (mynd 1) (8). Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins greinast að meðaltali 45 manns á ári með sortuæxli í húð, 45 með önnur húðæxli og um 170 manns með svonefnd grunnfrumuæxli í húð. Tíðni húðæxla í heild hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum og mest er aukningin hjá ungum konum. Sortuæxlum hefur fjölgað mest, en þau eru alvarlegasta tegund húðkrabbameina og algengasta krabbameinið hjá konum á aldrinum 15-34 ára. Á síðastliðnum tuttugu árum hefur nýgengi sortuæxla hjá konum farið úr 5,3 tilvikum í 18,5 (miðað við 100.000 íbúa) (8).
Til að draga úr tíðni húðkrabbameina og dauðsföllum af þeirra völdum er talið árangursríkast að beita fyrirbyggjandi aðgerðum og að greina meinin snemma.

Það virðist vera að hérlendis gangi betur að greina meinin snemma en áður. Til marks um þetta er að dánartíðni (mynd 2) hefur ekki aukist að sama skapi og nýgengi og að í flestum löndum greinast nú þynnri æxli en áður (8). Mikilvægt er að allir læknar hugi að greiningu húðkrabbameina. Kjörið tækifæri gefst til að skoða húðina við flestar læknisheimsóknir þó sjúklingurinn leiti ekki læknis vegna húðbreytinga. Sýnt hefur verið fram á að mörg húðkrabbamein greinast þegar sjúklingarnir leita læknis vegna annarra vandamála (9). Í mörgum tilvikum þurfa sjúklingarnir að afklæðast til að læknisskoðun geti farið fram og tekur þá ekki langan tíma að skoða húðina samhliða. Á þennan hátt geta greinst mein á frumstigi sem hefðu annars hugsanlega greinst síðar og getur þannig skilið á milli feigs og ófeigs. Vakni grunur um húðkrabbamein er sjálfsagt að vísa sjúklingnum til læknis sem hefur reynslu af meðferð og greiningu húðkrabbameina. Sé þess ekki kostur og grunur er um sortuæxli, ber að fjarlægja meinið í heild sinni með 2 mm hreinum brúnum ásamt fitulagi (10). Reynist meinið illkynja þarf að framkvæma útvíkkaða skurðaðgerð. Ekki er ásættanlegt að taka eingöngu sýni úr æxlinu því slíkt getur leitt til falskrar neikvæðrar niðurstöðu og tafið greiningu (10).
Hin aðferðin byggir á fræðslu til almennings og áhættuhópa. Almenn ráð fela í sér að forðast sólbruna, klæða af sér sólina, nota sólvörn, vera ekki í sólskini um miðjan daginn og síðast en ekki síst að nota ekki ljósabekki (10). Þrátt fyrir að sterk rök séu gegn sólböðum bendir flest til þess að brúnn húðlitur sé í tísku hérlendis (4). Nýleg könnun hérlendis bendir til að áhættuhegðun hér sé algeng (tafla), þannig að fræðslan virðist ekki komast nægilega vel til skila (4). Áberandi er að flestir hafa brunnið í sólinni og að regluleg notkun sólvarnarkrema er ekki almenn. Læknar eru í lykilstöðu og ættu að nota tækifærið og ræða sólvarnir við sjúklinga sína, sérstaklega þá sem eru mjög brúnir, hafa mikið af fæðingarblettum eða þar sem má finna merki sólsköddunar í húð. Einnig má benda á að sólböð, sérstaklega sólbruni barna og unglinga, virðast hafa í för með sér meiri hættu á myndun sortuæxla, en slík hegðun síðar á ævinni. Það er því sérstaklega mikilvægt að huga að sólvörnum barna og unglinga.
Hérlendis er sérstakt áhyggjuefni hve ljósbekkjanotkun virðist algeng hjá börnum og unglingum. Í tengslum við nýlegt fræðsluátak (Hættan er ljós), Geislavarna ríkisins, Krabbameinsfélagsins, Landlæknisembættisins og Félags íslenskra húðlækna var ljósbekkjanotkun könnuð (11). Tekjulágt fólk með litla menntun fer frekar og oftar í ljósabekki heldur en aðrir. Af þeim sem fóru í ljós síðustu tólf mánuðina fór fjórði hver oftar en tíu sinnum. Um 24,1% unglinga á aldrinum 12-15 ára fór í ljós á því tímabili.
Mun algengara er að konur fari í ljós heldur en karlar, 39,3% samanborið við 21,9%. Yngri konur fara frekar í ljós en þær sem eldri eru. Samkvæmt könnuninni má áætla að dag hvern fari um átján hundruð Íslendingar í ljós.
Könnunin leiddi einnig í ljós að um 70% kvenna á aldrinum 16-24 ára fóru í ljós síðustu tólf mánuði, um 54% 25-34 ára, um 24% 35-44 ára og 23% á aldrinum 45-75 ára. Um 35% karla á aldrinum 16-24 ára fóru í ljós síðustu tólf mánuði, um 38% 25-34 ára, um 19% 35-44 ára og 9% á aldrinum 45-75 ára. Samanburður við önnur lönd bendir til þess að fleiri Íslendingar en Svíar, Bretar og Kanadamenn fari í ljós.

Fyrstu sólbaðsstofurnar hér á landi tóku til starfa fyrir aldarfjórðungi. Lausleg athugun leiðir í ljós að á höfuðborgarsvæðinu séu nú um þrjátíu sólbaðsstofur, auk þess sem ljósabekkir eru á mörgum líkamsræktarstöðvum og á sundstöðum (12). Í ljósi sterkra raka um skaðsemi ljósbekkja verður það að vera sjálfsögð krafa að ljósabekkir verði fjarlægðir úr opinberum stofnunum, svo sem sundstöðum og öðrum íþróttamannvirkjum. Það skýtur mjög skökku við að á stöðum sem ætlað er að bæta heilbrigði landsmanna sé seldur aðgangur án takmörkunar að ljósabekkjum sem geta valdið húðkrabbameini.
Útfjólubláu ljósi má skipta í stutta geisla (UVB, 295-320 nm) sem valda sólbruna og langa geisla (UVA, 320-400 nm) sem bæla ónæmiskerfið og valda hrukkumyndun. Ljósabekkir gefa frá sér nánast eingöngu UVA geisla. Í fyrstu voru eingöngu UVB geislar tengdir húðkrabbameini, en seinni tíma rannsóknir hafa einnig sýnt sterk tengsl við UVA geisla. Fyrstu sólvarnirnar veittu eingöngu vörn gegn UVB geislum og bruna og gátu þannig aukið UVA geislamengun þeirra sem notuðu sólvarnarkrem. Flestar sólvarnir í dag veita vörn gegn bæði UVA og UVB geislum, en sólvarnarstuðullinn segir eingöngu til um vörn gegn UVB geislum og mælir í raun og veru hve miklu lengri tíma það tekur að mynda roða í húð sem hefur verið borin á sólvarnarkrem, samanborið við ómeðhöndlaða húð. Er þá miðað við að borið sé nokkuð þykkt lag á húðina. Rannsóknir hafa sýnt að flestir bera mun þynnra laga á húðina og að svæði eins og háls, vangar og eyru gleymast oft alveg (13). Rannsóknir sýna að margir nota sólarvörn með röngu hugarfari, það er til þess að lengja tímann sem hægt er að vera í sól án þess að brenna (13). Þetta kann að leiða til óhóflega mikillar UVA geislunar. Það er því mikilvægt að fræða fólk um rétta notkun sólvarnarkrema og leggja áherslu á að notkun sólvarnarkrema á ekki að leiða til aukins tíma í beinu sólskini. Mikilvægt er að leggja áherslu á að samhliða notkun sólvarnarkrema, sé sólin klædd af sér og reynt að halda sig í skugga eftir því sem kostur er.
Að lokum; algengi húðkrabbameina, sérstaklega sortuæxla, hefur aukist mjög mikið hérlendis. Læknar eru í lykilaðstöðu til að greina slík mein snemma og einnig til að veita fræðslu um sólvarnir. Ljósabekkjanotkun hérlendis er með því hæsta sem þekkist og vil ég nota tækifærið og skora á yfirvöld að setja reglugerð sem geri notkun ljósabekkja hjá unglingum háða skriflegu leyfi foreldra.
1. Green A, Williams G. Ultraviolet radiation and skin cancer: epidemiological data from Australia. In: Environmental UV Photopiology (Young A, Bjorn L, Moan J et al., eds). New York: Plenum, 1993: 223-54.
2. IARC. Monographs on the Evaluation of Carcinogenic Risks to Humans. In: IARC, Lyon: 1992.
3. Rosso S, Zanetti R, Pippione M, Sancho-Garnier H. Parallel risk assessment of melanoma and basal cell carcinoma: skin characteristics and sun exposure. Melanoma Res 1998; 8: 573-83.
4. Rafnsson V, Hrafnkelsson J, Tulinius H, Sigurgeirsson B, Ólafsson JH. Risk factors for cutaneous malignant melanoma among aircrews and a random sample of the population. Occup Environ Med 2003; 60: 815-20.
5. Matsumura Y, Ananthaswamy HN. Molecular mechanisms of photocarcinogenesis. Front Biosci 2002; 7: d765-83.
6. Young AR, Chadwick CA, Harrison GI, Hawk JL, Nikaido O, Potten CS. The in situ repair kinetics of epidermal thymine dimers and 6-4 photoproducts in human skin types I and II. J Invest Dermatol 1996; 106: 1307-13.
7. Koh HK, Geller AC, Miller DR et al. Prevention and early detection strategies for melanoma and skin cancer. Current status. Arch Dermatol 1996; 132: 436-43.
8. Jónason J, Tryggvadóttir L, eds. Krabbamein á Íslandi. Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands 50 ára. Reykjavík: Krabbameinsfélagið, 2004.
9. Lindelof B, Hedblad MA, Sigurgeirsson B. Melanocytic naevus or malignant melanoma. A large-scale epidemiological study of diagnostic accuracy. Acta Derm Venereol 1998; 78: 284-8.
10. SIGN. Cutaneous Melanoma. A national clinical guideline. In: Scottish Intercollegiate Guidelines Network, Edinburgh: 2003.
11. Gallup. Ljósabekkir - Viðhorfskönnun. Geislavarnir ríkisins, 2004.
12. Krabbameinsfélagið. Fjórði hver unglingur fór í ljós síðasta árið. In: Krabbameinsfélagið, Reykjavík: 2004: www.krabb.is/2004frettir/0330gallup
13. Azurdia R, Rhodes L. - Has the sun protection factor had its day. Sunscreen users need education in application technique. BMJ 2000; 320: 1275.
Leiðbeiningar til Flugmanna
Fri, Feb 6 2009 02:33
| Húðkrabbamein, Flugmenn, Sortuæxli
| Fastur tengill
Leiðbeiningar til flugmanna
Rannsóknir hafa sýnt að aukin áhætta er á myndun sortuæxla hjá flugmönnum og flugliðum. Ekki er að full ljóst af hverju þessi áhætta stafar. Þeir sem standa að þessum rannsóknum telja að hugsanlegt er að þessi áhætta tengist geimgeislum. Þessi til stuðnings er sú staðreynd að áhættan virðist aukast í réttu hlutfalli við þá geislun sem flugmaðurinn hefur orðið fyrir.
Húðlæknastöðin hefur tekið að sér að skoða flugmenn reglulega m.t.t. einkenna sem geta bent til illkynja meina eða forstigsbreytinga þeirra. Þessar skoðanir eru mjög mikilvægar svo hægt sé að greina þessi mein á frumstigi. Ekki síður er mikilvægt að flugmenn hafi eftirfarandi í huga:
1. Kynna sér staðreyndir um sortuæxli og útlit þeirra þannig að þeir geti greint hættumerkin. Þess vegna er nauðsynlegt að kynna sér eftirfarandi efni.
Rannsóknir hafa sýnt að aukin áhætta er á myndun sortuæxla hjá flugmönnum og flugliðum. Ekki er að full ljóst af hverju þessi áhætta stafar. Þeir sem standa að þessum rannsóknum telja að hugsanlegt er að þessi áhætta tengist geimgeislum. Þessi til stuðnings er sú staðreynd að áhættan virðist aukast í réttu hlutfalli við þá geislun sem flugmaðurinn hefur orðið fyrir.
Húðlæknastöðin hefur tekið að sér að skoða flugmenn reglulega m.t.t. einkenna sem geta bent til illkynja meina eða forstigsbreytinga þeirra. Þessar skoðanir eru mjög mikilvægar svo hægt sé að greina þessi mein á frumstigi. Ekki síður er mikilvægt að flugmenn hafi eftirfarandi í huga:
1. Kynna sér staðreyndir um sortuæxli og útlit þeirra þannig að þeir geti greint hættumerkin. Þess vegna er nauðsynlegt að kynna sér eftirfarandi efni.
2. Skoða húðina mánaðarlega m.t.t. breytinga. Hvernig slík skoðun fer fram er lýst hér að ofan
3. Nota sólvörn 25 eða meira í sól
4. Mæta í skoðun á vegum FíA og Húðlæknastöðvarinnar
5. Ef blettur er að breyta sér. Hafa samband við Húðlæknastöðina í síma 5204444, eða með tölvupósti. Gefa upp að þú sért flugmaður og að þú hafir áhyggjur af blett sem er að breyta sér.
Mikilvægt er að átta sig á að blettir sem eru í lagi við skoðun geta breytt sér á 6 mánuðum eða jafnvel styttri tíma. Þess vegna er mánaðarleg sjálfskoðun mjög mikilvæg.
Kær kveðja
Húðlæknastöðin
www.hudlaeknastodin.is
3. Nota sólvörn 25 eða meira í sól
4. Mæta í skoðun á vegum FíA og Húðlæknastöðvarinnar
5. Ef blettur er að breyta sér. Hafa samband við Húðlæknastöðina í síma 5204444, eða með tölvupósti. Gefa upp að þú sért flugmaður og að þú hafir áhyggjur af blett sem er að breyta sér.
Mikilvægt er að átta sig á að blettir sem eru í lagi við skoðun geta breytt sér á 6 mánuðum eða jafnvel styttri tíma. Þess vegna er mánaðarleg sjálfskoðun mjög mikilvæg.
Kær kveðja
Húðlæknastöðin
www.hudlaeknastodin.is
Sortuæxli
Wed, Jan 21 2009 12:35
| Húðkrabbamein, Sortuæxli
| Fastur tengill
Sortuæxli eru hættulegasta tegund húðkrabbameina og geta dtegið fók til dauða. Árlega deyja um 5 einstaklingar af sortuæxlum hérlendis. Sortuæslum hefur fjölgað mjög mikið hérlendis og eru nú algengasta krabbameinið hjá ungum konum.
Smelltu hér til að lesa meira.......
Smelltu hér til að lesa meira.......
Sólbrún fermingarbörn
Wed, Jan 21 2009 12:16
| Sólvörn, Ljósabekkir, Húðkrabbamein
| Fastur tengill
Útivera og hreyfing er nauðsynleg fyrir flesta og er auðvitað af hinu góða. Fólk á hins vegar ekki að liggja í sólböðum til að verða brúnt. Sérstaklega eiga börn og unglingar ekki að stunda sólböð og alls ekki að brenna í sólinni. Sólbruni þýðir að húðfrumurnar hafa skemmst og við sólbruna er stundum lagður grunnur að húðkrabbameini sem kannski kemur ekki í ljós fyrr en eftir nokkur ár eða áratugi. Sérstaklega á að vara sig á sólinni þegar hún er hæst á lofti um hádegið en þá eru geislarnir sterkastir.
Steingrímur Davíðsson húðlæknir hefur ritað grein um skuggahliðar brúnnar húðar.
Smelltu hér til að lesa greinina...........
Steingrímur Davíðsson húðlæknir hefur ritað grein um skuggahliðar brúnnar húðar.
Smelltu hér til að lesa greinina...........
Hættan er ljós
Tue, Jan 20 2009 03:16
| Húðkrabbamein, Sortuæxli
| Fastur tengill
Á hverju ári standa Geislavarnir ríkisins, Krabbameinsfélagið, Landlæknisembættið og Félag íslenskra húðlækna fyrir fræðslu til að minna á skaðsemi ljósabekkja, en hver eru hin skaðlegu áhrif ljósabekkjanna?
Árið 1992 gaf Alþjóða krabbameinsrannsóknarstofnunin út yfirlýsingu þar sem fram kom að nægar vísindalegar upplýsingar lægju fyrir til að fullyrða að útfjólubláir geislar gætu valdið sortuæxlum og öðrum húðkrabbameinum. Útfjólubláa geisla er að finna bæði í geislum sólarinnar og ljósabekkja.
Húðlæknarnir Jón Hjaltalín Ólafsson og Bárður Sigurgeirsson hafa rituð grein í Morgunblaðið um þessi mál.
Smelltu hér til að lesa greinina.....
Árið 1992 gaf Alþjóða krabbameinsrannsóknarstofnunin út yfirlýsingu þar sem fram kom að nægar vísindalegar upplýsingar lægju fyrir til að fullyrða að útfjólubláir geislar gætu valdið sortuæxlum og öðrum húðkrabbameinum. Útfjólubláa geisla er að finna bæði í geislum sólarinnar og ljósabekkja.
Húðlæknarnir Jón Hjaltalín Ólafsson og Bárður Sigurgeirsson hafa rituð grein í Morgunblaðið um þessi mál.
Smelltu hér til að lesa greinina.....
Hættumerki sem geta beint til sortuæxlis
Mon, Jan 19 2009 11:44
| Hættumerkin, Húðkrabbamein
| Fastur tengill
Mikilvægt er að þekka einkenni sem geta bent til sortæxlis. Ef blettirm eru að breyta sér, klæjar í, eru mislitir, ósamhverfir eða með óregluega kanta geta það verið merki um illkynja breytingu.
Skoðaðu alla húðina mánaðarlega
Mon, Dec 22 2008 04:48
| Fyrirbyggjandi aðgerðir, Húðkrabbamein
| Fastur tengill
Skoðaðu húðina mánaðarlega. Það er besta leiðin til þess að greina húðkrabbamein snemma. Slík regluleg skoðun getur bjargað lífi þínu.
Þú þarft að hafa góðan veggspegil og handspegil.
Húðkrabbamein og fæðingarblettir
Sun, Dec 21 2008 03:39
| Húðkrabbamein
| Fastur tengill
Sortuæxlum hefur fjölgað mjög mikið á Íslandi undanfarin 10 ár. Ætlunin er að fjalla sérstaklega um sortuæxli hér á vefnum. Hér má finna bækling (Acrobat form) krabbameinsfélagssins sem Ellen Mooney húðlæknir og húðmeinafræðingur hefur ritað. Hér er bæklingurinn sem venjuleg vefsíða.
Húðkrabbameinum er að fjölga
Sun, Dec 21 2008 09:10
| Húðkrabbamein
| Fastur tengill
Nú greinst árlega að meðaltali um 40 sortuæxli, 40 önnur húðæxli og 160 grunnfrumuæxli í húð, samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins. Nýgengi húðkrabbameins hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum. Sortuæxli í húð er algengasta tegund krabbameins hjá konum á aldrinum frá 15 til 34 ára. Lífshorfur sjúklinga með sortuæxli hafa batnað mikið og geta langflestir þeirra sem greinast snemma vænst þess að ná fullum bata. Nú eru á lífi um 400 Íslendingar sem hafa fengið sortuæxli í húð, um 350 með önnur húðæxli og rúmlega 1600 með grunnfrumuæxli í húð. Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands heldur skrá yfir öll greind mein hérlendis. Hér má skoða nýgengi sortuæxla og annarra húðkrabbameina.

